Rakinn dónaskapur

"Með því að þiggja boðið er ég að leggja blessun yfir hjónaband samkynhneigðra sem gengur gegn stefnu Miðflokksins" sagði hinn kristilegi Jenis av Rana.

Hvað skyldu þeir vera margir þjóðfélagshóparnir sem kauðinn sá getur ekki snætt með? Gæti hann snætt með muslimum? Gæti hann snætt með föngum? Gæti hann snætt með vændiskonum?

Ótrúlegt að heyra svona á árinu 2010. Það er ég alveg handviss um að þessi ótrúlegi afturhaldsseggur hefur margoft setið til borðs, til dæmis á veitingastöðum, með samkynhneigt fólk í grennd við sig, vitandi af því eða ekki, en algjörlega án þess að verða meint af matnum! Þvílíkur hræsnari.

Ég sé að einhverjir skrifarar eru að hæla þessum manni fyrir þann kjark að standa svona fast á skoðun sinni. Þetta er enginn kjarkur heldur fullkominn heigulsháttur og dónaskapur við hina íslensku þjóð og Jóhönnu og Jónínu þó sérstaklega.

Hvernig dettur þessum manni í hug að nærvera hans leggi blessun yfir nokkurn skapaðan hlut?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er einhver munur á þessum þingmanni og

þingmanni klerkanna í Íran?

JSH (IP-tala skráð) 7.9.2010 kl. 16:52

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, það er alger grundvallarmunur á þeim, JSH. Í Íran drepa þeir samkynhneigða, jafnvel samkvæmt "lögum", en í Færeyjum amast þessi Kristilegi miðflokkur ekki við þeim.

Jón Valur Jensson, 7.9.2010 kl. 17:31

3 Smámynd: Björn Birgisson

Var að koma úr búðinni og hvað sé ég? Ég er bara kominn með upplýsingafulltrúa og ritara! Ég geri heldur ráð fyrir að spurningunni hafi verið beint til mín!

Björn Birgisson, 7.9.2010 kl. 17:36

4 Smámynd: Björn Birgisson

JSH, sameiginlegt eiga þeir að vera öfgamenn.

Björn Birgisson, 7.9.2010 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband