Alþingi er að lama Hæstarétt Íslands

"Í Landsdómi sitja 15 manns, þ. á m. fimm reynslumestu hæstaréttardómararnir. Á meðan þeir sitja réttarhöld í Landsdómi geta þeir ekki sinnt öðrum málum og því blasir við að störf réttarins munu eitthvað tefjast."

Maður situr eins og lamaður eftir þennan dag. Rétt eins og þegar það rann upp fyrir manni að Besti flokkurinn væri að taka til sín sex borgarfulltrúa í Reykjavík.

Nokkur undur hafa litið dagsins ljós á þessu ári í pólitíkinni.

1.  Stórsigur Besta flokksins í Reykjavík.

2.  Jón Gnarr varð borgarstjóri! Ææææææææ.....hahahaha!

3.  Fortíðarskrímslið Landsdómur vakinn upp af löngum dvala.

4.  Eini Íslendingurinn sem hefur verið fjármálaráðherra, utanríkisráðherra og   forsætisráðherra verður dreginn fyrir Landsdóm fyrstur manna.

5.  Alþingi lamar Hæstarétt Íslands með því að taka frá honum 5 reyndustu dómarana í mál sem aldrei vinnst á meðan stóru alvöru málin hlaðast upp.

6.  Samfylkingin og Framsókn gera svo þokkalega í buxurnar að fnykurinn mun fæla þúsundir atkvæða í burtu.

7.  Nenni ekki að telja upp fleira. Þú bætir kannski einhverju spennandi við lesandi góður!

Er ekki af nógu að taka?


mbl.is Fimmtán manna landsdómur kallaður saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður B Hjartarson

    Björn minn góður ! 6. Þú átt við Samtrygging og Framapotarar - ekki satt ?

    Ójújú - nóg er af skítnum enn , til að moka út , þ.e. í haughúsinu er stendur við Austurvöll - ert þú klár í moksturinn ?

    5. Það er þó huggun harmi gegn að það dregst þá , kannske , að dæma níu menningana , þessa sem ákærðir voru fyrir að ætla að hjálpa skítnum að standa upp úr stólunum "sínum" í Þjóðarleikhúsinu .

    2. Þótt ýmislegt misgott megi segja um Bjarnfreðarson sem borgarstjóra , þá hefur hann farið framm úr mínum björtustu vonum , þ.e. sem borgarstjóri .

Hörður B Hjartarson, 28.9.2010 kl. 21:18

2 Smámynd: Björn Birgisson

Hörður minn, gott að þú ert ánægður með Gnarrinn, en hefur hann gert nokkuð merkilegt sem borgarstjóri?

Björn Birgisson, 28.9.2010 kl. 21:30

3 identicon

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 22:00

4 Smámynd: Björn Birgisson

Sá þetta Jón Óskarsson, verð með stutt blogg um stuttbuxnadeildina á eftir. Hún er ekki alslæm.

Björn Birgisson, 28.9.2010 kl. 22:15

5 identicon

Ég vona bara að fólk vakni nú og ákveði að kjósa ekki fjórflokkinn næst. Við þurfum algjöra uppstokkun í pólitíkinni.

Hoppandi (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 23:21

6 Smámynd: Björn Birgisson

Hoppandi, hvað ætlar þú að kjósa næst? Flokkinn minn kannski? BB Flokkinn?

Björn Birgisson, 28.9.2010 kl. 23:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband