Étur Mogginn gamla seðla?

Eistar brenna hitaeiningum eins og annað fólk og fá daglega orku úr fæðunni sinni. Nú eru þeir farnir að brenna gamla seðla til hitunar heimila sinna. Það er allt annað mál!

Eistar brenna peningaseðlum segir mbl.is í fyrirsögn fréttarinnar.

Það gera þeir ekki!

Eistar brenna peningaseðla.

Eistar brenna timbur.

Eistar brenna ekki timbri.

Enda timbur hið mesta óæti!

Eistar brenna ekki peningaseðlum.

Til þess þurfa þeir að éta seðlana. Þeir eru ekkert að gera það!

Enda verðlausir seðlar hið mesta óæti!

Fyrirsögn þessarar fréttar mbl.is er móðgun við móðurmálið og matarvenjur vina okkar í Eistlandi.


mbl.is Eistar brenna peningaseðlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sögnin að brenna er áhrifssögn og stýrir þolfalli. Morgunblaðið er subbulegt.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 11.1.2011 kl. 21:55

2 Smámynd: Björn Birgisson

Hrafn Arnarson, mér finnst orðið subbulegt ljótt. Ekki er ég barnanna bestur í meðförum málsins okkar, en öllum meðaljónum má ljóst vera að í blaðamannastétt Íslands er all margt fólk, sem örugglega hefur fengið 4,9 eða minna í íslensku á lokaprófinu.

Blaðamenn verða að fara vel með málið okkar.

Björn Birgisson, 11.1.2011 kl. 22:28

3 identicon

Var ekki allt fólk með metnað rekið af þessu blaði og í staðinn notast við krakka sem hægt er að stýra og vita ekki hvað metnaður er.

Skilja ekki orðið.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 11.1.2011 kl. 22:46

4 Smámynd: Björn Birgisson

Var það svo, Jón Óskarsson?

Björn Birgisson, 11.1.2011 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband