Landsolía skal það vera! Einstaklingum er ekki treystandi fyrir svarta gullinu!

Vitaskuld á að stofna ríkisolíufélag. Það gæti heitið Landsolía á ylhýra og Iceoil upp á útlensku.

Landsolía á ekki einvörðungu að koma að rannsóknum og vinnslu á Drekasvæðinu.

Landsolía á að yfirtaka allan innflutning á eldsneyti til landsins, sem og dreifingu og smásölu út um allt landið.

Núverandi kerfi er óhagkvæmt og fokdýrt, auk þess sem það brýtur allar reglur um samráð og samkeppni.

Landsolía skal það vera!

Einstaklingum er ekki treystandi fyrir svarta gullinu!

Hvorki hér né annars staðar.


mbl.is Skoðað að stofna ríkisolíufélag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða, hvaða! Og svipta hina forríku möguleikanum á að fjárfesta í olíufélögum í nafni frjáls framtaks, setja félögin á hausinn og senda síðan ríkisreknum bönkum reikninginn? (Eftir að hafa greitt sjálfum sér gífurlegan arð af engu, vitskuld!)

Bjarni stjórnarformaður hlýtur að mótmæla. Nema honum snúist hugur og stefni að stjórnarformennsku í Landsolíu... :-P

Fyrrum Trítilóða öndin (IP-tala skráð) 13.9.2011 kl. 20:35

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er bara eðlilegt að Bjarni verði settur í forstjórastólinn hjá Landsolíu,  þegar honum verður, af gribbunni, á pólitískan haug kastað úr formannsstóli sjálfstæðisflokksins. Það er ekki sanngjarnt að hann verði settur í þá erfiðu stöðu að þurfa að vinna fyrir sér.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 13.9.2011 kl. 20:43

3 identicon

Sammála þessu. Einnig mætti stofna Landslyf, sem sæi um innflutning á öllum lyfjum. Engin ástæða til að láta heildsala græða á slíku, þeir mega ekki einu sinni auglýsa lyfin og ef ég man rétt, gáfust þeir upp á því að dreifa þeim, eða nenntu því ekki. Nei, til þess var stofnað einkafyrirtæki, sem þýddi verðhækkun. Landsáfengi væri næst á listanum, eða barasta Landi. Ríkið mundi sjá um innflutning á öllum áfengum drykkjum. Þá vöru má einnig ekki auglýsa, því samkeppnin núll. Þannig myndu milljarðar renna í ríkiskassan, en ekki í vasa heildsala Hrunflokksins.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 13.9.2011 kl. 21:34

4 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Engar áhyggjur - fjórflokkurinn reddar þessu fyrir sig og sína 

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 13.9.2011 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband