Man einhver eftir einhverju afreki Höskuldar?

Hvað hefur Höskuldur Þórhallsson, alþingismaður Framsóknarflokksins, gert fyrir launafólk í þessu landi?

Eitthvað meira og betra en ríkisstjórnin?

Í svipinn man ég reyndar ekki eftir neinu!

Samt man ég vel eftir Noregsferðinni forðum!


mbl.is „Illa vegið að launafólki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir hann bless árið 2016?

Margt bendir til þess að vinstrisinnaði hægrimaðurinn Ólafur Ragnar Grímsson hyggist ekki setja sjálfan sig á útskiptibekk útrásarinnar og ástandsins, eins og væntanlega verður hlutskipti margra þingmanna í næstu kosningum, í apríl 2013. Margt bendir því til þess að Ólafur Ragnar hyggist varðveita húslyklana að Bessastöðum til ársins 2016.

Íslenskir fjármálafasistar leggjast í mótmæli gegn sjálfum sér, verkum sínum og afleiðingum!

‎1. október 2011. Austurvöllur. Heimsviðburður á Íslandi.

Ekkert Fischer/Spassky dæmi!

Ekkert Regan/Gorbasjof dæmi!

Algjörlega fordæmalaus atburður!

Vonandi verða allar stöðvarnar hans Ólafs Ragnars forseta viðstaddar.

CNN, BBC, HHP og hvað þær nú heita allar!

Heimsviðburður á Íslandi!

Íslenskir fjármálafasistar leggjast í mótmæli gegn sjálfum sér, verkum sínum og afleiðingum!

Eitthvað fyrir heimspressuna.

Klárlega.

Aldrei gerst áður í mannkynssögunni!

Ísland verður enn sem fyrr frægasta land í heimi!


Fámennið auðveldar stuld þeirra betur settu á öllu naglföstu, handföstu og huglægu

Nú þarf nýja hugsun. Út fyrir rammann. Hugsun heimsborgara, en ekki kotbúans, sem arðrænir sjálfan sig og allt í kring um sig, án þess að vita af því!

Fámennið auðveldar stuld þeirra betur settu á öllu naglföstu, handföstu og huglægu.

Hér á Íslandi er pexað um sameiningar hreppa, sem í búa svo fáir að þeir geta hvorki haldið almennilegt þorrablót, né önglað saman í fótboltalið!

Nú er Jonas Gahr Støre (fæddur 25. águst 1960 í Oslo), utanríkisráðherra Noregs, staddur hérlendis og Norðmenn voru að finna nýja gullæð svarta gullsins, á meðan Drekasvæðið bíður.

Ný hugsun.

Sameinum öll Norðurlöndin í eitt ríki.

Þitt hlutverk er að stinga upp á nafninu!


Hvar ætti Borgarahreyfingin að fá áhættufíkla til að skipa baráttusætin?

Friðrik Þór Guðmundsson var kjörinn formaður Borgarahreyfingarinnar á aðalfundi félagsins í vikunni.  

Borgarahreyfingin verður auðvitað að hafa stjórn og svoleiðis á meðan hún fær á þriðja tug milljóna árlega frá ríkinu vegna þingstyrks flokksins!

Fjórir þingmenn, allir týndir!

En gefa samt ágætlega af sér!

Varla býður Borgarahreyfingin fram aftur.

Hvar ætti hún að fá áhættufíkla til að skipa baráttusætin?


mbl.is Friðrik Þór formaður Borgarahreyfingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Væri þá ekki ráð að láta Samtök atvinnulífsins hreinlega bjóða í rekstur ríkisins?

Ef ekki væru Stjórnarskráin, Rannsóknarskýrslan og önnur leiðindi í veginum, væri þá ekki ráð að láta Samtök atvinnulífsins hreinlega bjóða í rekstur ríkisins?

Þar fara menn með lausnir á öllu.

Menn sem allt vita betur.

Menn sem kunna allt, geta allt, ef marka má orðaleppana þeirra.

Hvernig væri það?

Hafa þeir áhuga? Raunverulegan? Eða er málið of flókið fyrir þá?

Hér með er óskað eftir tilboðum í rekstur hins íslenska ríkis.

Tilboðsgjafar fá bæði blautklúta og snýtibréf!


Á þjóðin betri kandidata í verkefni og vinnu forsætisráðherra?

Hún stóð sig framar vonum sú gamla á RÚV í kvöld.

Hún er ekki í auðveldasta starfi landsins.

Hún er í vanþakklátasta og erfiðasta starfi landsins.

Hún tók við gjaldþrota búi. Horfði reyndar á gjaldþrotið verða til, án þess að sjá það!

Á þjóðin betri kandidata í þetta verkefni?

Bjarna? Sigmund? Steingrím? Einhvern?


Dómsvaldið á Íslandi er auðvitað dásamlegt!

Hæstiréttur sendi Héraðsdómi í Reykjavík og lögreglunni í sömu borg skilaboð í dag.

Efnislega eitthvað á þessa leið:

Þið eruð vankunnandi kjánar, óhæfir í störfum ykkar, þið klúðrið tiltölulega einföldum hlutum og kórónið síðan vanhæfni ykkar með kolröngum ályktunum, byggðum á sandi, nokkrum vitnum og engu öðru.

Ekki þarf að efast um að Héraðsdómur og lögreglan munu senda Hæstarétti samsvarandi kveðjur!

Dómsvaldið á Íslandi er auðvitað dásamlegt!


mbl.is Sýknaður af árásarákæru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnvel eini raunhæfi valkosturinn?

Menn ættu að fara sér mjög hægt í að tala tilraun Guðmundar Steingrímssonar niður.

Miðað við fréttir af hans plönum og viðræðum, gæti hér verið að myndast fylking sem hæglega gæti fengið 15-25% atkvæða.

Fyrir þá sem eru orðnir yfir sig þreyttir á gömlu flokkunum gætu Guðmundur og félagar orðið mjög líklegur valkostur.

Jafnvel eini raunhæfi valkosturinn.


Mismunurinn á auglýsingaverðinu í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu var hreint út sagt ótrúlegur!

Var beðinn, óbeint af erlendum aðilum, að kanna verð á 3-4 heilsíðuauglýsingum í stærstu blöðunum og upplag þeirra. Tilefnið var að kynna nýja vörulínu frá Bandaríkjunum, sem til stendur að hefja innflutning á.

Upplag Fréttablaðsins var sagt vera um 90 þúsund, en Morgunblaðsins um 55 þúsund.

Verðið hjá Fréttablaðinu var ótrúlega hátt að mínu mati, en að sama skapi var verð Morgunblaðsins langt undir því sem ég átti von á.

Mismunurinn var hreint út sagt ótrúlegur. Nánast tveir fyrir einn!

Þeim tölum hef ég komið á framfæri við fólkið sem bað mig að kanna þetta.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband