Ótrúlega illa ígrunduð samþykkt flokks í lýðræðisríki

Oftast er betra að hugsa og velta fyrir sér hlutunum áður en anað er út í einhverja vitleysu. Það er nú að renna upp fyrir landsfundarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Með þeirri harðorðu ályktun sem ungliðar úr stuttbuxnadeild flokksins, fengu samþykkta í Evrópumálunum, hefur flokkurinn nánast útilokað aðkomu sína að ríkisstjórn Íslands um langa hríð. Örugglega var þessi ESB ályktun samþykkt við litla hrifningu hins nýendurkjörna sextíu og tveggja prósenta formanns.

Alveg er ljóst að samstarf Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins er nú nánast óhugsandi, nema auðvitað Sjálfstæðismenn kokgleypi og svíkji þessa stefnu sína, eins og þeir hafa sakað VG liða um að hafa gert.

Alveg er ljóst að innan raða VG er enginn áhugi á samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Skárra væri það nú.

Alveg er ljóst að minnkandi Framsóknarflokkur og minnkandi Sjálfstæðisflokkur munu verða fjarri meirihluta á þingi að loknum næstu kosningum.

Alveg er ljóst að til þess að Sjálfstæðisflokkurinn eigi fræðilegan möguleika á ríkisstjórnarþátttöku eftir næstu kosningar, þá verða að koma til sveiflur í landsmálunum eitthvað í líkingu við stórsprengjur Besta flokksins.

Þetta heitir á ástkæra og ylhýra að mála sig út í horn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Við skulum ekki loka augunum fyrir því að farsi Sjálfstæðisflokksins er mjög að nálgast Besta, þannig að allt gæti gerst..

Nei þeir eru víst rækilega búnir að grafa eigin gröf Sjallarnir, einangraðir og sneyptir.

Bjarni er síðan að bera sig til við að moka yfir.....RIP..

hilmar jónsson, 27.6.2010 kl. 20:14

2 Smámynd: Björn Birgisson

Svo samþykktu þeir líka að stærstu nöfnin innan eigin raða ættu að taka pokann sinn og láta sig hverfa af opinbera sviðinu vegna spillingar. Það var reyndar fín samþykkt og til eftirbreytni fyrir aðra flokka. Bjarni Ben var spurður út í þetta á RÚV í kvöld og svaraði bara út í hött.

Björn Birgisson, 27.6.2010 kl. 20:20

3 Smámynd: hilmar  jónsson

Nú gerði hann það blessaður, Það lá að.

hilmar jónsson, 27.6.2010 kl. 20:24

4 Smámynd: Björn Birgisson

Baldur Hermannsson sagði á sínu bloggi, áður en hann missti málið, að einhverjir 9 ættu að taka pokann sinn. Held að af þeim hafi bara Illugi og Þorgerður Katrín látið sig hverfa.

Björn Birgisson, 27.6.2010 kl. 20:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband