LÍÚ trúðunum breytt í marhnúta?

"Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu var lögfræðiálitið unnið sumarið 2009, en  þar kemur fram að nýting á úthafsrækjukvóta hafi verið afar lítil árin fjögur þar á undan. Ónýttur kvóti hafi legið á bilinu 77-92% á tímabilinu."

Bingó! 77-92% ónýttur kvóti. Af hverju? Útgerðarmenn segjast ekki hafa, eða getað, grætt neitt á honum. Þar liggur hundurinn grafinn.

Ráðherrann fer að lögum og gefur þetta frjálst. Nú kemur í ljós hvort þessar veiðar geta verið arðbærar eða ekki.

Aðrir fá að spreyta sig. Nýliðar komast inn í greinina kjósi þeir það og telji það skynsamlegt.

Að breyta rækju í þorsk í hagnaðarskyni er ónáttúrulegt.

Álíka ónáttúrulegt og að breyta LÍÚ trúðunum í marhnúta.

Nú reynir á kerfið.

Sem er gott.


mbl.is Útgerðarmenn funduðu með ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki er hægt að tegundabreyta rækju í þorsk í kvótakerfinu, reyndar er ekki hægt að tegundatilfæra neinni tegund til að búa til þorsk

Hlýri

Hlýri (IP-tala skráð) 19.7.2010 kl. 21:02

2 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Getur þú ekki breytt þeim í aðra tegund Björn, þá er möguleiki að veiða þá.

Aðalsteinn Agnarsson, 19.7.2010 kl. 21:15

3 Smámynd: Björn Birgisson

Hvaða tegund má bjóða þér, Aðalsteinn minn?

Björn Birgisson, 19.7.2010 kl. 21:17

4 identicon

Mér finnst ad thjódin sem á audlindir sjávar umhverfis Ísland aetti ad valta yfir LÍÚ og thá stjórnmálamenn sem halda verndarhendi yfir thessu sambandi.  Ad til sé fullordid fólk sem laetur höndla sig sem ómálga barn er hálf vidbjódslegt.  Ad thjódin hafi saett sig vid thetta glaepakerfi í meir en aldarfjórdung er sorglegur brandari.

Skötuselur (IP-tala skráð) 19.7.2010 kl. 21:46

5 Smámynd: Björn Birgisson

Skötuselur, ef þú værir ekki svona ljótur, myndi ég segja að þú hefðir 230% rétt fyrir þér! Takk fyrir innlitið!

Björn Birgisson, 19.7.2010 kl. 22:06

6 identicon

Björn ég myndi segja að hann hefði 230% rangt fyrir sér.

magnús gunnarsson (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 00:35

7 Smámynd: Björn Birgisson

Nú, það munar ekki nema 460%, hvað er það á milli kvótavina?

Björn Birgisson, 20.7.2010 kl. 00:42

8 identicon

Samtök Marhnúta hafa beðið mig að koma því á framfæri hér að Samtök Marhnúta
vilja við engar kringumstæður taka við stökkbreyttum LÍÚ-trúðum, jafnvel þótt þeir
hafi stökkbreyst í einhvers konar marhnútalíki. Stofninn þolir enga úrkynjun.

Fyrir hönd Samtaka Marhnúta.

Grefill.

Grefill (IP-tala skráð) 20.7.2010 kl. 02:53

9 Smámynd: Björn Birgisson

Point taken!

Björn Birgisson, 20.7.2010 kl. 03:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband