21.7.2010 | 23:15
Falleinkunn gefin af þjóðinni. Skýrari verða skilaboðin ekki!
Hvaða aðili í þjóðfélaginu pantaði eiginlega þessa könnun?
29,3%! Algjör falleinkunn fyrir stjórnarandstöðuna. Fullkomið flopp, sérstaklega fyrir Sjálfstæðisflokkinn, því hann er svo klár að eigin sögn, sérstaklega í stjórnun fjármálanna! Eins og dæmin auðvitað sanna!
Hlægilega lág tala. Þykjast ekki Sjálfstæðismenn vera með 30-35% fylgi? Hverju svöruðu sjallarnir, framsóknarmennirnir, eða hreyfingarfólkið, eða fulltrúar nýrra framboða í könnuninni?
Gáfu flestir hverjir skít í sitt fólk í fylkingarbrjósti. Það er ljóst.
29,3%! Þetta stefnir í að verða brandari sumarsins!
Þarf engan að undra. Íslendingar hafa gott skopskyn, þótt alvaran sé aldrei langt undan.
29,3%! Algjör falleinkunn fyrir stjórnarandstöðuna. Fullkomið flopp.
Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson stórauka fylgi við ríkisstjórnina með því einu að vera til og hegða sér eins og þeir gera.
Lifi þeir sem lengst í stöðum sínum og verði þeir allra karla elstir!
Skelfing er pólitíkin að verða fyndin í þessu landi!
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þjóðin gefur sér falleinkunn hún kaus jú þettta lið.
Guðmundur Ingi Kristinsson (IP-tala skráð) 22.7.2010 kl. 00:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.