26.7.2010 | 13:06
Dolli
"Nefndin féllst hins vegar á að eiginnöfnin Fossmar og Dolli verði skráð í mannanafnaskrá."
Mannanafnanefnd er áreiðanlega oft vandi á höndum. Hugmyndaflugi fólks virðast fá takmörk sett, sem er auðvitað ágætt.
Nú sé ég fyrir mér fallega skírnarathöfn, eftir 25 ár, þar sem gullfallegur hvítvoðungur er borinn til skírnar inn í hið kristilega samfélag.
Presturinn spyr: og hvað á barnið að heita og stolt amman, sem heldur á barninu undir skírn, svarar hátt og skýrt:
Dolli.
Dolli Dollason.
Bjarkan og Dolli leyfð - Líza og Fossmar ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Á Skagaströnd eru feðgar sem heita báðir Adolf og eru Berndsen. Sá yngri er aldrei kallaður annað en Dolli, sá eldri, fjandfrændi minn, er kallaður Jæji en líka oft Dolli til hátíðarbrigða.
Dolli Dollason er því til. Það er opinbert leyndarmál að sá eldri var skírður í höfuðið á þeim eina sanna.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.7.2010 kl. 14:37
Þeim eina sanna!
Björn Birgisson, 26.7.2010 kl. 14:42
Mér gengur misjafnlega vel að skilja það sem frá þessari mannanafnanefnd kemur og hlutverk hennar. Hún minnir á kvikmyndaeftirlitið forðum sem hafði aðallega það hlutverk að klippa, af heilsufarsástæðum, nekt út úr bíómyndum áður en þær kæmu fyrir almenningssjónir.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.7.2010 kl. 14:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.