Engin hjól?

"Flugvél af gerðinni Twin Otter frá flugfélaginu Norlandair lenti á einum hreyfli á Akureyrarflugvelli rétt fyrir kl.18."

Frábært að ekki fór illa að þessu sinni.

Frábært að hægt var að kalla slökkviliðið út til að vera til taks, þrátt fyrir allar verkfallsdeilur, sem voru kannski engar í dag.

Frábært að geta lent á einum hreyfli, sem ég reyndar skil ekki alveg hvernig er hægt!

Er ekki alltaf betra að lenda á hjólunum þegar flugvélar nálgast flugbrautir?


mbl.is Lenti á einum hreyfli á Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lenda á hjólunum já....   En að lenda á einum hreyfli, af hvað mörgum ? 

Bjössi (IP-tala skráð) 14.8.2010 kl. 21:15

2 Smámynd: Björn Birgisson

Ekkert flugvirki lendir á einum hreyfli, ekki frekar en köttur með 9 líf lendir á vestur eyranu eftir fall!

Björn Birgisson, 14.8.2010 kl. 21:21

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

rétt er þetta allt saman - líka það að lenda á hjólunum - legg reyndar til að lent verði á vellinum næst.

Allt í lagi að gantast með þetta þar sem engin slys urðu á fólki - en er að sjálfsögðu alvarlegt þegar svona gerist.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 15.8.2010 kl. 10:57

4 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

 Góður Björn. Ég sem einkaflugmaður lýsi því yfir að mér finnst mikilvægast að lenda á hjólunum, hvort sem það er á flugvelli eða annarstaðar með eða án hreyfils,,, en ég var nú alltaf frekar flughrædd þannig að þetta er bara mitt álit. Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 15.8.2010 kl. 20:01

5 Smámynd: Björn Birgisson

Flughræddur einkaflugmaður? Kolla, ertu með þessu að fæla alla vinina frá því að biðja um smá útsýnisflug fyrir lítið annað en vináttuna?

Svo hefur verið bent á að best sé að lenda á flugbrautinni með hjólin niðri!

Björn Birgisson, 15.8.2010 kl. 20:08

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Já það er best en ekki alltaf í boði. Ég hef aldrei átt það góða vini að þeir treysti sér með mér í flugtúr nema þeir sem eru sjálfir einkaflugmenn. En by the way þá eru það öruggustu flugmennirnir sem eru sjálfir hálfsmeykir. Allavega er ekkert að óttast í flugi nema óhrædda flugmenn og hryðjuverkamenn Þú getur komið með mér þess vegna, ef þú þorir kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 15.8.2010 kl. 21:09

7 Smámynd: Björn Birgisson

Kolla mín, takk fyrir þetta! Þetta er ekki spurning um hvort ég þori, miklu heldur hvort frúin þorir að gefa mér leyfi! Ég er nú bara svona venjulegur rakki með hálsól og í spotta og það get ég fullyrt að sá spotti nær ekki í 10 þúsund fetin!

Björn Birgisson, 15.8.2010 kl. 21:22

8 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

 Góður... en hvað ég skil hana vel að halda fast í endann hahahaha. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 17.8.2010 kl. 23:36

9 Smámynd: Björn Birgisson

Hjúkk, hvað þú ert skilningsrík! Svona okkar á milli, þá heldur hún alltaf fast í endann sinn, en veit ekki af einu, sem er algjört leyndarmál og má ekki fara lengra, eins og Steingrímur heitinn sagði á blaðamannafundinum forðum. Ég skar minn enda frá ólinni fyrir mörgum árum, en fylgi alltaf samt minni húsmóður, kann ekkert annað! Sauðtryggur hvutti!  Voff! 

Björn Birgisson, 17.8.2010 kl. 23:46

10 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Hmmmm snuðra á þráðinn.... ekki tendra vonarneista sauðtryggi hundur hahahah  

Annars geri ég því skóna að þú eigir alveg frábæra konu sem hefur svipaðan húmor og þú m.a.v. bloggsamskipti okkar. Bið að heilsa henni. Fátt skemmtilegra en skemmtilegar konur,,, þær eru bara allt of fáar  Kveðja Kolla

Kolbrún Stefánsdóttir, 18.8.2010 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband