14.9.2010 | 21:21
Alþingi er að sökkva í sjálfskapað kviksyndið
"Hún segir fyrstu umræðu um tillögur nefndarinnar um ráðherraábyrgð hefjast á föstudagsmorgun. Því næst verði þeim vísað aftur til nefndar fyrir aðra umræðu."
Haft eftir Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta hins háa Alþingis Íslendinga.
Alþingi Íslendinga er að sökkva í eigið sjálfskapað kviksyndi hins beiska sands, á sama tíma og Landeyjahöfn er að fyllast af annars konar sandi.
Saltari sandi en tárum taki. Það á reyndar við um Alþingi líka.
Alþingi er nú þegar sokkið í eigið kviksyndið upp undir mitti þingmanna og því björgunar enn von, sjái þingmenn til sólar eftir allt svartnættið, sem riðið hefur röftum þinghússins við Austurvöll.
Aðeins þó með því að þessar heimskulegu þingsályktunartillögur um ákærur á fjóra fyrrum ráðherra verði dregnar til baka eða þær kolfelldar.
Aldrei mun ég kjósa nokkurn þann flokk sem styður þennan skrípaleik, hvorki á landsvísu, né í heimabyggð.
Ítarlega hef ég gert grein fyrir þeirri afstöðu minni í fyrri færslum.
Haldi þingheimur þessum ákærum til streitu má hans eigið kviksyndi gleypa hann allan og þinghúsið með, svo eftir standi ber svörðurinn.
Þá hefst ný uppbygging hjá þjóðinni - án fjórflokksins.
Umræðu líklega frestað á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Maður veit ekki hvort maður eigi að hlæja eða gráta vegna þessa kostulega máls. Líklega gráta.
Hólímólí (IP-tala skráð) 14.9.2010 kl. 21:38
Gráta, án alls vafa.
Björn Birgisson, 14.9.2010 kl. 21:43
Björn, ætlar þú að nota lauk.
Aðalsteinn Agnarsson, 14.9.2010 kl. 21:56
Aðalsteinn minn, ég notaði allan minn lauk í frábæra pottsteik í kvöld! Lambahryggur úr Meðallandinu, matreiddur á ítalska vísu, borinn fram með hrærðrum kartöflum frá maddömunni á Lómatjörn.
Björn Birgisson, 14.9.2010 kl. 22:13
Flottur.
Aðalsteinn Agnarsson, 14.9.2010 kl. 22:37
Er bræla? Það er svo lygnt hérna við tölvuna, þótt stundum hvessi einnig þar!
Björn Birgisson, 14.9.2010 kl. 22:44
Já það er bræla, Björn minn, og strandveiðin löngu búinn.
Aðalsteinn Agnarsson, 14.9.2010 kl. 23:04
Mikið Rosalega er ég sammála þér.Björn
Eyjólfur G Svavarsson, 15.9.2010 kl. 16:00
Gott að heyra, Eyjólfur.
Björn Birgisson, 15.9.2010 kl. 17:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.