Björgvin ekki þingflokksformaður Samfylkingar

"Þórunn Sveinbjarnardóttir verður áfram formaður þingflokks Samfylkingarinnar en hún tók við því embætti þegar Björgvin G. Sigurðsson vék tímabundið af þingi í apríl."

Jæja, en nú er Björgvin G. Sigurðsson mættur til leiks að nýju og hann hefur ekki verið ákærður fyrir eitt eða neitt.

Af hverju fær hann þá ekki sömu stöðu og hann gegndi þegar hann fór í sína sjálfskipuðu útlegð? Hvaða skilaboð er Samfylkingin að senda þjóðinni?

Kannski vill Björgvin ekki leiða söfnuðinn eftir allt sem á undan er gengið, en ég efast um að honum hafi staðið það til boða.


mbl.is Þór Saari formaður Hreyfingarinar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Hluti þingmanna sf vildi hann fyrir landsdóm - OG innan sf er engin sátt um endurkomu hans á alþingi -

Óðinn Þórisson, 1.10.2010 kl. 17:10

2 Smámynd: Björn Birgisson

Áreiðanlega er það rétt hjá þér Óðinn.

Björn Birgisson, 1.10.2010 kl. 17:14

3 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Hverju yrðum við bætt þótt allir slordónar frá landnámsmorgni til þessa dags yrðu dregnir fyrir dómstóla? Myndi ástandið eitthvað skána? Batnaði heimurinn eitthvað þegar Árni Mathiesen sneri sér að dýralækningum? Skánaði ástandið í borginni við það að kjósa trúða til að stjórna henni? Væri ekki best að reyna að sætta sig við ríkjandi ástand og horfa á björtu hliðarnar?

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 1.10.2010 kl. 17:35

4 Smámynd: Björn Birgisson

Ben.Ax., björtu hliðarnar skulu það vera! Veistu hvar þær eru?

Björn Birgisson, 1.10.2010 kl. 17:38

5 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Er ekki gott veður í Grindavík?

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 1.10.2010 kl. 17:44

6 Smámynd: Björn Birgisson

Hér er alltaf logn, það fer bara mishratt yfir.

Björn Birgisson, 1.10.2010 kl. 18:08

7 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Horfðu á björtu hliðarnar,
hungursneyð er fjarri Íslandsströndum.
Horfðu á björtu hliðarnar,
heimsstyrjaldir verða í öðrum löndum,
svo vertu nú sæll.

Sverrir Stormsker

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 1.10.2010 kl. 18:16

8 Smámynd: Björn Birgisson

Ben.Ax., takk fyrir þetta. Mér líður strax betur og er búinn að fjárfesta í hluta af landnámshænsnakofa, þar sem eggjamarkaðurinn virðist blómlegur og líklegur til að fara vaxandi.

Björn Birgisson, 1.10.2010 kl. 18:47

9 Smámynd: Vendetta

Mér finnst, að fólk sem á ekki fyrir mat handa börnunum sínum ættu að hefja söfnun til að geta keypt veglega gjöf handa Björgvini, því að hann hefur gengið gegnum svo erfiða reynslu undanfarið, skv. viðtali hans við Stöð 2. En hann segir að það geri hann að betri manni, sem hlýtur að vera hughreysting fyrir fólk sem er að missa heimili sín og vinnu. 

Vendetta, 1.10.2010 kl. 19:16

10 Smámynd: Björn Birgisson

Vendetta, á þessari síðu er vissulega rúm fyrir gálgahúmor, en klárlega hefur Björgvin átt erfiða daga, á öðrum forsendum þó en margir aðrir.

Björn Birgisson, 1.10.2010 kl. 19:24

11 Smámynd: Vendetta

En vandamál hans er lúxuspróblem, þ.e. ekki raunverulegt vandamál. Tittlingaskítur miðað við það sem margir aðrir þurfa að ganga í gegnum. Hann er allt sitt á þurru, þótt hann hafi verið lækkaður í tign. Hann hefur vellaunað starf og ekki fer húsið hans á uppboð. Ég hef enga samúð með honum frekar en öðrum þingmönnum sem komast undan réttvísinni.

Ég er ekki að segja, að Björgvin sé sekari en ISG og Árni. Mér finnst hreinlega að það hefði átt að draga alla ábyrga ráðherra síðan um aldamót fyrir Landsdóm og dæma þá í 2ja ára fangelsi upp á vatn og brauð.

Vendetta, 1.10.2010 kl. 20:08

12 Smámynd: Vendetta

Með "ábyrga ráðherra", þá á ég við alla forsætis-, viðskipta- og fjármálaráðherra auk flokksformanna í öllum ríkisstjórnum síðan um og eftir aldamótin síðustu. Auðvitað eru margir alþingismenn líka sem voru ekki starfi sínu vaxnir, en Landsdómslögin ná aðeins til ráðherra.  

Vendetta, 1.10.2010 kl. 20:14

13 Smámynd: Vendetta

Vanalegar leiðréttingar.

Það átti að standa: "Hann hefur allt sitt á þurru,...", en ekki "Hann er allt sitt á þurru,"

Vendetta, 1.10.2010 kl. 20:16

14 Smámynd: Theódór Norðkvist

Samfylkingin er að verða eins og Sjálfstæðisflokkurinn. Hentu út einum spillingarsegg og þá kemur annar jafnvel enn verri í staðinn.

Þóhrun Sveinbjarnardóttir var ráðherra í hrunstjórninni og bar þá ábyrgð á gjörðum þeirrar ríkisstjórnar, þó Geir H.(run) Haarde og Ingibjörg Sólhrun Gísladóttir beri mestu ábyrgðina, sem hausarnir á þessu tvíhöfða skrímsli sem þá var við völd.

Theódór Norðkvist, 1.10.2010 kl. 21:53

15 Smámynd: Björn Birgisson

Theódór, er nú ekki réttara að fara rétt með nöfn þessa fólks, þótt reiðin sjóði undir niðri?

Björn Birgisson, 1.10.2010 kl. 22:01

16 Smámynd: Theódór Norðkvist

Oft er fólk kennt við það sem það stendur fyrir. Gunnar í Krossinum, Helgi í Góu o.s.frv. Ég er bara að fara aðeins lengra með þá reglu og taka afrekaskrána inn í nöfnin.

Theódór Norðkvist, 1.10.2010 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband