Sögðu 10-15 þúsund upp?

Staksteinar Morgunblaðsins, málsgagns Sjálfstæðisflokksins og LÍÚ, upplýsa lesendur í dag um að hundruð manna hafi gengið úr Samfylkingunni að undanförnu, en geta ekki heimilda frekar en fyrri daginn, þegar Samfylkinguna eða VG ber á góma.

Frábært að Morgunblaðið skuli nú vera búið að ná góðum tökum á tölfræðinni, hvort sem það lýgur þessu eða ekki. Ekkert veit ég um það. Ég veit hins vegar að "hundruð manna" er all nokkur fjöldi í fámennu landi, hvað þá í 25-30% stjórnmálaflokki.

Það var nefnilega þannig að þegar Davíð Oddsson, einn umdeildasti maður landsins, tók við ritstjórninni í Hádegismóum, urðu langmestar annir í áskriftadeildinni, annir sem féllu í grýttan jarðveg útgefenda blaðsins. Skiljanlega.

Margir spurðu um fjölda þeirra sem kvöddu blaðið og fóru. Morgunblaðið þagði alltaf þunnu hljóði um það, enda fjöldinn áreiðanlega óásættanlegur fyrir blaðið og fjárhag þess.

Nú liggur beinast við að nota þá taktík sem til dæmis Agnes Bragadóttir og Morgunblaðið hafa kennt þjóðinni. Hún kristallast í þessu:

Samkvæmt áreiðanlegum heimildamönnum, sem kusu nafnleynd, hafa BB Fréttir rökstuddan grun um að 10-15 þúsund áskrifendur hafi yfirgefið Morgunblaðið þegar Davíð Oddsson var ráðinn ritstjóri þess. Samkvæmt sömu heimildum mun fjárhagur blaðsins standa á algjörum brauðfótum. Jafnvel svo alvarlegum að stutt gæti verið í hrun númer tvö.

Kannast menn við stílinn?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Svokallaður Mognesar stíll

Axel Jóhann Hallgrímsson, 2.10.2010 kl. 22:08

2 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Já kanski það sé ekki alvarlegra að segja sig úr Samfylkinguni en að segja upp dagblaði. Dreymi ikkur vel strákar mínir.

Eyjólfur G Svavarsson, 3.10.2010 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband