Frábær nýjung við stærðfræðikennslu

Ert þú í einhverjum vandræðum með stærðfræðinámið þitt eða veistu af einhverjum sem þyrfti kannski smávægilega aðstoð til að fljúga í gegn um prófin sín? Ef svo er ættir þú að lesa þessa færslu til enda. Hér er fjallað um stórmerkilega nýjung, sem mun nýtast mörgum vel.

Eitt af þeim fyrirtækjum sem hreiðrað hafa um sig á Ásbrú í Reykjanesbæ heitir Algebra.is og eins og nafnið gefur til kynna sérhæfir fyrirtækið sig í stærðfræðikennslu og hefur sú þjónusta verið all mikið notuð, einkum af Suðurnesjabúum í námi. Grunnskólanemum, framhaldsskólanemum og lengra komnum í námi.

En nú hefur fyrirtækið aldeilis stækkað sitt markaðssvæði með einföldum snjöllum tölvulausnum, þannig að nú geta allir nýtt sér þjónustuna, hvar sem þeir eru staddir á landinu, eða í heiminum þess vegna.

Nemandinn situr bara við tölvuna sína á höfuðborgarsvæðinu, á Kópaskeri eða í Kalkútta á Indlandi og fær þessa fínu kennslu í stærðfræðinni, lifandi á skjánum! Aðeins þarf að hafa Skype og það má nálgast að kostnaðarlausu á heimasíðu Algebru.is.

Þessi fjarkennslulausn er byltingarkennd nýjung og eftir því sem best er vitað er hún einsdæmi hérlendis. Kannski í heiminum öllum?

Kynntu þér málið nánar með því að heimsækja síðu Algebru.is og spilaðu þar You Tube myndbandið, auk þess að lesa þér til um starfsemina, en slóðin er þessi:

http://algebra.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 602480

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband