8.11.2010 | 12:35
Eldsúrir Staksteinar
Staksteinar Morgunblaðsins verða súrari með hverjum deginum sem líður. Þeir eru orðnir hálfgerðir gallsteinar.
Það er nánast pottþétt að Staksteinar fjalla annað hvort um Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formann VG, eða Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar. Um þetta fólk er ekkert gott skrifað, en margt miður og sumt hreinlega illt. Þá sjaldan sem ekki er skrifað um Steingrím og Jóhönnu, fær ríkisstjórnin á baukinn.
Staksteinahöfundar eru algjörlega með þetta fólk á heilanum, sem er undarlegt því af nógu er að taka við skriftirnar.
Til dæmis væri gaman að sjá í Staksteinum fjallað um þá staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn hefur líklega aldrei á lýðveldistímanum verið jafn valdalítill og sjá síðan hverjum staksteini velt við í leit að helstu skýringunni á valdaleysi flokksins.
Gætu skýringarnar á valdaleysi flokksins hitt skrifarann illa fyrir?
Þá er auðvitað miklu betra að halda áfram að sparka til Jóhönnu og Steingríms.
Óþarfi að leggjast í að skora sjálfsmörkin.
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já drottinn minn hvað þetta er orðið átakanlega andlaust hjá þeim.
hilmar jónsson, 8.11.2010 kl. 15:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.