Aumingja karlinn hann Geir

"Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, telur að óhæfilegur dráttur hafi orðið á því að honum sé skipaður verjandi vegna málshöfðunar Alþingis frá 28. september síðast liðnum."

Eðlilega er hann að verða pirraður á allri þessari vitleysu og lái honum hver sem vill.

Ljóti aumingjadómurinn að stefna Geir fyrir Landsdóm, aleinum af öllum þeim skara sem svaf á vaktinni á milli þess sem lygar bankamanna voru kokgleyptar reglulega og skolað niður með kampavíni.

Fyrir hvað er Geir aftur ákærður? Já, já, við vitum það svo sem.

Það sem færri vita er að ef spurningin hér að ofan hefði verið borin upp í þeim Evrópulöndum sem stórtöpuðu á íslenska bankahruninu, þá hefði svar þeirra líklega verið þessu líkt:

Áreiðanlega fyrir að setja neyðarlögin og mismuna viðskiptavinum föllnu bankanna svo hrikalega að annað eins er óþekkt í fjármálasögu Evrópu, líklega aðallega til að bjarga ríkum Íslendingum.

Geir er ekkert ákærður fyrir það.


mbl.is Krefst skipunar verjanda síns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Jónasson

ja auðvitað a hann rett á að verja sig en dómar eru bara pantaðir á Íslandi eins og Pizzur og sér sjálfskiptingin um allt slíkt núna.

Jónas Jónasson, 18.11.2010 kl. 20:20

2 Smámynd: Björn Birgisson

Sjálfskiptingin?

Björn Birgisson, 18.11.2010 kl. 20:23

3 Smámynd: Jónas Jónasson

sorry ætlaði ad segja Samfylkingin.

Jónas Jónasson, 18.11.2010 kl. 20:39

4 Smámynd: Björn Birgisson

Jónas, flestir dómarar landsins, í Héraðsdómi og Hæstarétti, eru skipaðir af dómsmálaráðherrum Sjálfstæðisflokksins. Hvernig ætti Samfylkingin að geta pantað niðurstöður hjá þeim? En pizzur getur hún pantað!

Björn Birgisson, 18.11.2010 kl. 20:52

5 Smámynd: Jónas Jónasson

ja ég meinti líka Sjálfstæðisflokkurinn... þetta er allt sama pressan í sömu drullunni! vilja bara verja "fílabeinsturnana sína" Ekkert annað!  og þessir fordæmisdómar héraðsdóms og hæstaréttar sem nýfallnir í gengistryggðum voru bara sviðsettir pantaðir og það vitum við öll.

Jónas Jónasson, 18.11.2010 kl. 21:55

6 Smámynd: Haraldur Axel Jóhannesson

Hvernig er það?  Ég hélt að verjendur væru aðeins skipaðir þeim sem ekki hefðu sjálfir ráð á lögmanni? Og ef lögmaður er skipaður þá getur maður ekki bara "pantað" hvern sem er!

Haraldur Axel Jóhannesson, 18.11.2010 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband