30.11.2010 | 09:41
Hver er sýniþörfin að þessu sinni?
"Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur óskað eftir fundi í allsherjarnefnd Alþingis vegna kosninganna til stjórnlagaþings."
Gat nú verið. Hefur þessi þingkona endalausa þörf fyrir að láta á sér bera? Auðvitað lá alltaf ljóst fyrir að mörg atkvæði yrðu vandlesin og ógild. Margt fólk skrifar mjög illa og það er mikill munur á að setja eitt X á kjörseðil, eða skrifa allt að 100 tölustafi.
Er kannski að koma í ljós að hin hámenntaða íslenska þjóð er illa skrifandi?
Allsherjarnefnd Alþingis! Ætlar þingkonan að leggja þar til að skriftarkennsla verði aukin í skólum landsins eða hver er sýniþörfin að þessu sinni?
Kosningarnar verði ræddar í allsherjarnefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála,hvað er eiginlega með þessa blessaða konu ? Notar hvert tækifæri til að láta á sér bera....
Gína (IP-tala skráð) 30.11.2010 kl. 09:56
Er ekki eðlilegt að þingið rannsaki þetta klúður Björn? Ekki viljum við að þetta verði bæði fyrsta og síðasta persónukjörið með þessu sniði. Þingið ber ábyrgð á að þessi leið var farin en landskjörstjórn klúðraði framkvæmdinni tel ég.
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 30.11.2010 kl. 11:29
Hvernig klúðraði landskjörstjórn framkvæmdinni?
Björn Birgisson, 30.11.2010 kl. 11:42
Björn, ég hef aðeins verið að fylgjast með innhringiþáttum og það er yfirgnæfandi óánægja með framkvæmdina. Í fyrsta lagi þá var verið breyta til með kjörstaði og hringla með opnun kjörstaða. Utankjörfundar atkvæðagreiðslur voru illa kynntar og byrjuðu of seint. Erlendum ríkisborgurum var í stórum mæli gert ókleyft að taka þátt. Og síðast en ekki síst var framkvæmd á kjörstöðum ábótavant með því að fólki var ekki leiðbeint með útstrikanir og það að ekki mátti brjóta seðilinn saman. Kynningin var svo náttúrulega skandall. En það má kannski frekar skrifa á stóru fjölmiðlana frekar en landskjörstjórn
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 30.11.2010 kl. 12:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.