6.12.2010 | 15:16
Sjómannaafslátturinn virðist vera á förum
"Eftir þingið liggja fjölmargar ályktanir, meðal annars er afnámi sjómannaafsláttarins harðlega mótmælt og skorað á stjórnvöld að hætta við þau áform."
Já, sjómannaafslátturinn kominn á dagskrá einu sinni enn. Hann er þyrnir í augum margra, en ég held að meirihluta hugsandi fólks þyki hann sjálfsagður. Kannski ekki beint sjálfsagður, en auðveldlega réttlætanlegur.
Fyrir jólin í fyrra voru sjómenn þessa lands gladdir með samþykkt laga um niðurfellingu afsláttarins í fjórum áföngum á árunum 2011 til 2014. Nú um áramótin á því 25% skerðing að koma til framkvæmda verði lögum ekki breytt.
Þjóðin á að gera vel við sína sjómenn. Rétt eins og sjómenn gera þjóðinni vel með sinni erfiðu vinnu.
Í dag er sjómannaafslátturinn 980 krónur á úthaldsdag, en margföldunarstuðullinn er 1,4, þannig að talan hækkar sem því nemur. Sá sem er til dæmis 150 daga á sjó fær því rúman 200 þúsund kall í afslátt. Það eru nú öll ósköpin.
Með falli krónunnar fengu sjómenn flestir ágætan kaupauka, en þeir vilja ekki sjá á eftir afslættinum sem þeir hafa haft í um 60 ár.
Eðlilega ekki.
Þeir munu því reyna að sækja þessa aura til LÍÚ, breyti ríkið ekki um stefnu.
Gangi þeim vel í baráttunni við LÍÚ, sem hingað til hefur ekki verið hlaupandi á eftir sjómönnunum með kjarabæturnar.
Sjómenn álykta um sjómannaafslátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þriggja þrepa skattkerfið sem og það að ríkisstjórnin er nú annað árið í röð að svíkja landsmenn um áður umsamdar og lögbundnar hækkanir á persónuafslætti, kosta sjómenn og þá sem fá sjómannaafsláttinn mun meira en sem nemur niðurfellingunni á sjómannaafslættinum. Það er sorglegt þegar menn reyna að halda í aurinn en kasta krónunni.
Jón Óskarsson, 7.12.2010 kl. 00:51
Við stöndum með sjómönnum, Jón minn! Ekki kæmi mér á óvart að ríkisstjórnin heyktist á niðurfellingu sjómannaafsláttarins. Nóg er af sanngjörnu fólki þar, og þokkalegur slatti af gungum!
Björn Birgisson, 7.12.2010 kl. 01:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.