29.12.2010 | 17:59
Stórfurðuleg staða
Ég held að stjórnin lafi. Það er takmarkaður áhugi hjá Sjálfstæðisflokknum að fara í stjórn. Þingflokkur sjálfstæðismanna nýtur ekki trausts." segir Sigurjón Þórðarson formaður Frjálslynda flokksins.
Ég held að tilvitnuð orð Sigurjóns séu rétt. Stjórnin mun lafa og hökta eitthvað áfram, en sundurlyndið innan hennar mun aukast og að lokum fella hana. Óróleikinn í VG mun smitast yfir í Samfylkinguna og þá verður þetta búið spil.
Stjórnarandstöðunni til mikillar skelfingar. Sérstaklega þó Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum.
Í mínum huga er það alveg á hreinu að þessir flokkar hafa engan áhuga á setu í ríkisstjórn við núverandi aðstæður. Alls ekki Sjálfstæðisflokkurinn, með sína 16 þingmenn og þar innanborðs nokkra sem flokkurinn getur varla beðið eftir að losna við. Til þess þarf kosningar, sem hugsanlega gætu leitt flokkinn að stjórnarborðinu, þar sem hann vill alls ekki sitja!
Svo segjast allir vera í stjórnmálum til að hafa áhrif!
Auk þess er mjög líklegt að gamli fjórflokkurinn komi verulega laskaður frá kosningum.
Ný öfl munu koma fram og sópa til sín fylgi. Fjórflokkurinn vill því ekki kosningar á næstunni, hvað sem hver segir um það.
Undarleg staða!
Stjórnarandstaðan vill raunverulega að stjórnin lafi, en notar svo hvert tækifæri sem gefst til að níða hana niður og öll hennar verk.
Stórmannlegt er það ekki, en ekki við öðru að búast úr þeirri áttinni.
Róbert Marshall íhugi afsögn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef Framsókn verður boðið í partýið, hverfur stuðningur fleiri en stjórnin mun geta hangið saman á.
hilmar jónsson, 29.12.2010 kl. 18:27
Framsókn er ekkert á leiðinni inn í stjórnina.
Björn Birgisson, 29.12.2010 kl. 18:40
nú ?
hilmar jónsson, 29.12.2010 kl. 18:45
Hefur þú trú á því?
Björn Birgisson, 29.12.2010 kl. 18:48
Eru ekki sumir innan stjórnar búnir að gefa hintið ?
hilmar jónsson, 29.12.2010 kl. 18:49
Æi, ég veit ekki hverju á að trúa.
Björn Birgisson, 29.12.2010 kl. 19:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.