15.1.2011 | 17:28
Meirihlutinn hefur ævinlega rangt fyrir sér. Nokkur gullkorn af stjórnmálasviðinu.
Það er ekki úr vegi, nú þegar pólitíkin er að eyðileggja allt það besta í fari þessarar þjóðar, að líta á nokkur gullkorn sem sögð hafa verið um stjórnmálamenn heimsins eða af þeim sjálfum.
Sumir segja að ríkisstjórnin sé að falla, aðrir telja að hún lafi eitthvað áfram. Ef hún á að lifa öllu lengur þurfa VG liðar að sýna að þeir séu samstarfshæfir. Ef stjórnin ætlar að hökta áfram í sama takti og undanfarið, er líklega best að hún skili keflinu.
Lítum á nokkra gullmola:
Í stjórnmálum er heimskan ekki talin nein fyrirstaða.
- Napóleon
Stjórnmálaflokkur er eins og hakkavél, gerir allt og alla að einum graut.
- Henrik Ibsen
Stjórnmálamaður er sá sem heldur trúnaði fólks við sig með því að beina reiði þess að öðrum.
- Ók. höf.
Stjórnmál eru alltof alvarleg mál til þess að stjórnmálamönnum einum sé trúandi fyrir þeim.
- De Gaulle
Í stjórnmálum verður sannleikurinn að bíða uns einhver þarf á honum að halda.
- Björnstjerne Björnsson
Kjóstu þann sem fæstu lofar, hann svíkur minnst.
- R.W. Emerson
Íhaldsmaður er maður sem stendur föstum fótum í lausu lofti.
- Franklin D. Roosevelt
Það er mannlegt að skjátlast. En að skjátlast og kenna öðrum um það. Það eru stjórnmál.
- Ók. höf.
Vísindamennirnir leggja hart að sér til að gera hið ómögulega mögulegt. Stjórnmálamennirnir leggja hart að sér til að gera hið mögulega ómögulegt.
- Bertrand Russell
Stjórnmálamaður er eins og kvikasilfur. Reynir þú að góma hann kemstu að raun um að það er ekkert undir gómunum.
- A.O. Malley
Þegar stjórnmálamaður segir "við erum á sama báti" skaltu vara þig. Það þýðir að hann ætlar að taka að sér skipsstjórnina og þú verður að róa.
- Johannes Hohlenberg
Raunverulegt viðfangsefni stjórnmálamanna er að gera kjósendur ánægða, án þess að uppfylla óskir þeirra.
- Ók. höf.
Minnihlutinn kann að hafa rétt fyrir sér, en meirihlutinn hefur ævinlega rangt fyrir sér.
- Henrik Ibsen
Íhaldssamur maður er maður sem situr og hugsar, situr aðallega.
- Woodrow Wilson
Ég býð andstæðingum mínum samning. Ef þeir hætta að segja ósannindi um okkur skulum við hætta að segja sannleikann um þá.
- Adlai Stevenson
(Endurbirt, breytt og aukið)
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er þetta nokkuð úr nýju bókinni hans Hannesar Skólpsveins?
Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 15.1.2011 kl. 17:49
Neibb!
Björn Birgisson, 15.1.2011 kl. 18:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.