Meirihlutinn hefur ævinlega rangt fyrir sér. Nokkur gullkorn af stjórnmálasviðinu.

Það er ekki úr vegi, nú þegar pólitíkin er að eyðileggja allt það besta í fari þessarar þjóðar, að líta á nokkur gullkorn sem sögð hafa verið um stjórnmálamenn heimsins eða af þeim sjálfum.

Sumir segja að ríkisstjórnin sé að falla, aðrir telja að hún lafi eitthvað áfram. Ef hún á að lifa öllu lengur þurfa VG liðar að sýna að þeir séu samstarfshæfir. Ef stjórnin ætlar að hökta áfram í sama takti og undanfarið, er líklega best að hún skili keflinu.

Lítum á nokkra gullmola:

Í stjórnmálum er heimskan ekki talin nein fyrirstaða.

- Napóleon

Stjórnmálaflokkur er eins og hakkavél, gerir allt og alla að einum graut.

- Henrik Ibsen 

Stjórnmálamaður er sá sem heldur trúnaði fólks við sig með því að beina reiði þess að öðrum.

- Ók. höf.

Stjórnmál eru alltof alvarleg mál til þess að stjórnmálamönnum einum sé trúandi fyrir þeim.

- De Gaulle

Í stjórnmálum verður sannleikurinn að bíða uns einhver þarf á honum að halda.

- Björnstjerne Björnsson

Kjóstu þann sem fæstu lofar, hann svíkur minnst.

- R.W. Emerson

Íhaldsmaður er maður sem stendur föstum fótum í lausu lofti.

- Franklin D. Roosevelt

Það er mannlegt að skjátlast. En að skjátlast og kenna öðrum um það. Það eru stjórnmál.

- Ók. höf.

Vísindamennirnir leggja hart að sér til að gera hið ómögulega mögulegt. Stjórnmálamennirnir leggja hart að sér til að gera hið mögulega ómögulegt.

- Bertrand Russell

Stjórnmálamaður er eins og kvikasilfur. Reynir þú að góma hann kemstu að raun um að það er ekkert undir gómunum.

- A.O. Malley

Þegar stjórnmálamaður segir "við erum á sama báti" skaltu vara þig. Það þýðir að hann ætlar að taka að sér skipsstjórnina og þú verður að róa.

- Johannes Hohlenberg

Raunverulegt viðfangsefni stjórnmálamanna er að gera kjósendur ánægða, án þess að uppfylla óskir þeirra.

- Ók. höf.

Minnihlutinn kann að hafa rétt fyrir sér, en meirihlutinn hefur ævinlega rangt fyrir sér.

- Henrik Ibsen

Íhaldssamur maður er maður sem situr og hugsar, situr aðallega.

- Woodrow Wilson

Ég býð andstæðingum mínum samning. Ef þeir hætta að segja ósannindi um okkur skulum við hætta að segja sannleikann um þá.

- Adlai Stevenson

(Endurbirt, breytt og aukið)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Er þetta nokkuð úr nýju bókinni hans Hannesar Skólpsveins?

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 15.1.2011 kl. 17:49

2 Smámynd: Björn Birgisson

Neibb!

Björn Birgisson, 15.1.2011 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband