Klóndís til útflutnings

"Vigdís baðst afsökunar á orðum sínum. „Það sem ég átti við undir glymjandi bjölluslætti forseta var, að  tölvudeild Alþingis ráðlagði það, að málið færi ekki í hámæli," sagði Vigdís Hauksdóttir þingmaður."

Vigdís Hauksdóttir er frábær þingmaður. Hún getur verið svo skelegg að þjóðfélagið nötrar allt. Öll hennar gagnrýni og mál eru sett fram bæði markvisst, rökrænt og af fádæma yfirvegun. Svo verður hún svo falleg þegar hún biðst afsökunar á axarsköptum sínum. Þeim fáu sem til falla.

Ég legg til að hún verði klónuð í stórum stíl og síðan verði Klóndís seld í nokkrum flugvélaförmum til þjóðþinga annarra landa. Víða mun vera skortur á svona skörungum og því ætti eftirspurn að vera næg.

Ekki veitir svo af útflutningstekjunum.


mbl.is Sakaði tölvudeild þingsins um yfirhylmingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Mér fannst Vigdís þessi Hauksdóttir fremur órögg, rak af og til í vörðurnar, endurtók sífellt og ræðan var allt of löng fyrir vikið í umræðunum um dóm Hæstaréttar.

Þessi hæstaréttardómur er honum til vansa. Í stað þess að lægja öldurnar, magnar hann deilurnar í samfélaginu, öfgaöflunum til hvatningar. Er það hlutverk Hæstaréttar?

Auðvitað voru hnökrar á framkvæmd kosninganna en ekki kom það að sök eða hafði áhrif á niðurstöður. Þess vegna átti kosningin ekki að vera dæmd ónýt.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 26.1.2011 kl. 18:13

2 Smámynd: Björn Birgisson

Sammála, Mosi!

Björn Birgisson, 26.1.2011 kl. 18:14

3 identicon

Er þér svona illa við aðrar þjóðir að þú vilt þeim eintak af Vigdísi Hauksdóttur?

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 26.1.2011 kl. 18:14

4 Smámynd: Björn Birgisson

Láttu ekki svona, Jón Óskarsson, finnst þér Vigdís ekki frábær?

Björn Birgisson, 26.1.2011 kl. 18:20

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Hlutverk Hæstaréttar skilst mér að sé að reyna að skilja þau lög sem misvitrir þingmenn sjóða saman og samþykkja. Dómarar þar á bæ eru ekki öfundsverðir.

En þegar dómsmálaráðherrann sjálfur gefur tóninn og boðar að lögin þurfi ekki að taka alvarlega "ef enginn bíður tjón af" þá er eitthvað mjög mikið að hjá löggjafarvaldinu.

Ekki síður alvarlegt þegar forsætisráðherrann boðar að þar sem þjóðaratkvæðagreiðslan sé ómark eigi ríkisstjórnin bara rétt sisona að staðfesta hið ómerkta kjör.

Þegar þjóðmálum er svona komið þá er samt miklu betra að kjósa sætasta þingmanninn en efna til byltingar.

Ykkur líst vel á Vigdísi en mér finnst Árni Páll voða sætur...

Kolbrún Hilmars, 26.1.2011 kl. 18:37

6 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Góðir ræðumenn far eftir ráðleggingum Aristótelesar:

Skipta ber ræðu í 3 hluta: A-B-A.

Fyrst í A hluta sem er stuttur er stutt kynning. Í B hlutanum kemur þetta „leiðinlega“, þ.e. nánari útlistan og rökstuðningur. Og í 3. og síðasta hluta sem á að vera stuttur sem sá fyrsti eru aðalatriðin endurtekin og hnykkt á þeim með niðurlagi sem allir góðir ræðumenn ættu að byrja á að hafa strax í huga. Ef þeir hafa engin góð niðurlagsorð væri að öllum líkindum betra að þegja!

Góðar stundir

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 26.1.2011 kl. 18:39

7 Smámynd: Björn Birgisson

Kolbrún, eigum við þá að klóna hann líka og tvöfalda útflutninginn?

Björn Birgisson, 26.1.2011 kl. 18:49

8 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Björn, endilega! En þá eru samt 61 eftir - ætli það sé liðin tíð að láta það óseljanlega fylgja með í kaupbæti?

Kolbrún Hilmars, 26.1.2011 kl. 19:00

9 Smámynd: Björn Birgisson

Kolbrún, held því miður að ekki sé markaður fyrir restina! Hana verður bara að afskrifa.

Björn Birgisson, 26.1.2011 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband