2.10.2014 | 17:35
Algjörir snillingar símavinirnir Davíð og Geir! 35 milljarðar eru ekki nema hálfur glænýr Landspítali! Er ekki eitthvað um þetta fjallað í Morgunblaðinu?
"Íslenskir skattgreiðendur munu tapa ríflega 35 milljörðum króna á láninu sem Seðlabanki Íslands veitti Kaupþingi daginn örlagaríka 6. október 2008, þegar íslenska fjármálakerfið riðaði til falls og Alþingi samþykkti neyðarlög til að þess að bregðast við stöðu mála. Kaupþing fékk þá 500 milljónir evra að láni, eða sem nemur 76 milljörðum króna á núverandi gengi. Nú hefur endanlega verið staðfest að Seðlabanki Íslands mun ekki fá meira en 100 milljónir danskra króna, ríflega tvo milljarða króna, til baka til viðbótar við 1,9 milljarða danskra króna, um 40 milljarða króna, sem þegar höfðu skilað sér. Stefán Jóhann Stefánsson, ritstjóri Seðlabankans, staðfesti þetta við Kjarnann. Þetta er vissulega minna en vonir stóðu til um, sagði Stefán Jóhann. Endurheimtur af 500 milljóna evra láninu verða því að hámarki 270 milljónir evra." - Kjarninn
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.