Boðskapur Þórs Saari

"Mér sýnist þetta vera gamaldags „Jóhönnu félagsmálaráðherraaðferð" við að félagsmálavæða flest öll skuldug heimili á landinu," segir Þór Saari þingmaður Hreyfingarinnar.

Eitt má Þó Saari eiga. Hann liggur ekkert á skoðunum sínum. Hefur reyndar skoðun á flestu. Er líka duglegur að koma þeim á framfæri við fjölmiðlana.

Engu er líkara en að Þór Saari líti á sig sem einn aðalleikarann á stóra sviðinu við Austurvöll, en þar er hann aðeins í smáu aukahlutverki.

Í hverju málinu af öðru geysist hann fram á sviðið og viðrar skoðanir sínar og nær undantekningalaust veit hann betur en ríkisstjórnin og sá skari sérfræðinga sem hún hefur aðgang að. Og til þess þarf nú að vita ýmislegt.

Yrði það ekki fengur fyrir ríkisstjórnina að kippa öllum þessum gæðum og gáfum upp í ríkisstjórnarvagninn?


mbl.is Félagsmálavæða skuldug heimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Viðurkenni fúslega að ég væri stuðningsmaður Þórs ef hann færi fram með Lilju Mósesdóttur...

Kveðja

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 3.12.2010 kl. 14:08

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Hann er einn af fáum sem getur sagt sannleikann ÁÐUR en hann framkvæmir...

Óskar Guðmundsson, 3.12.2010 kl. 15:30

3 Smámynd: corvus corax

Þór Saari hefur meiri greind og þekkingu á efnahagsmálum þjóðarinnar en öll ríkisstjórnin til samans. Það að auki talar hann mannamál hreint út en ekki endalaust humm og jamm eins og ríkisstjórnin og fjórflokkadindlarnir.

corvus corax, 3.12.2010 kl. 16:04

4 identicon

Við lestur á þessu bloggi er ég miklu nær um skoðanir Björns Birgissonar á Þór Saari.

Ég er þó engu nær um hvað það er sem Þór Saari sagði, sem ekki er rétt.

Ég er líka miklu nær um það, af hverju umræða á Íslandi er svona lágkúruleg.

Hilmar (IP-tala skráð) 3.12.2010 kl. 16:05

5 Smámynd: Björn Birgisson

Hilmar, hvar sagði ég að Þór hefði sagt eitthvað "sem er ekki rétt?"

Björn Birgisson, 3.12.2010 kl. 16:15

6 Smámynd: Óðinn Þórisson

Þór inn ríkisstjórnina - er ekki hreyfing að undirbúa vantraust á ríkisstjórnina og er ekki LM um það bil að ganga í hreyfinguna

Óðinn Þórisson, 3.12.2010 kl. 18:14

7 Smámynd: Björn Birgisson

Veit ekki, Óðinn minn, ég frétti alltaf allt síðastur.

Björn Birgisson, 3.12.2010 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 602481

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband