Átta í plús hjá íhaldinu

Í gleðikastinu sem gripið hefur um sig á ritstjórn Moggans þegar skoðanakönnunin frá Miðlun ehf. lá fyrir hafa menn alveg gleymt sér. Venjan er sú að birta prósentutölur flokkanna og síðan fjölda þingmanna samkvæmt könnuninni. Samkvæmt könnuninni væri ríkisstjórnin fallin, fengi aðeins 30 þingmenn.

Hér skal bætt úr því sem Moggamenn gleymdu alveg.

Sjálfstæðisflokkur fengi 24 þingmenn (+8)

Samfylking fengi 16 þingmenn (-4)

Vinstri grænir fengju 14 þingmenn eins og síðast

Framsóknarflokkur fengi 5 þingmenn (-4)

Hreyfingin fengi 4 þingmenn eins og síðast

Helstu skekkjumörkin í þessu geta legið í fylgi Hreyfingarinnar, þar sem það liggur hættulega nærri 5% lágmarkinu sem þarf til að koma mönnum að.

Af þessu má sjá að stjórnarmyndun tveggja flokka yrði ekki án Sjálfstæðisflokks, sem myndað gæti stjórn með Samfylkingu eða Vinstri grænum.

Eins og vindar blása nú er hvorugur kosturinn líklegur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikta E

Gott hjá þér Björn - þú stendur þig.

Kannski verður þér boðinn prófarkarlestur á Mogganum.............

Benedikta E, 1.7.2010 kl. 13:23

2 Smámynd: Björn Birgisson

Benedikta, það er alls staðar þörf fyrir góða menn, líka á Mogganum!

Björn Birgisson, 1.7.2010 kl. 14:20

3 Smámynd: Benedikta E

Benedikta E, 1.7.2010 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 602479

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband