Bylgjan ber oftast af

Fjölmiðlun á Íslandi er stórskrýtin og í raun og veru svo skrýtin að þjóðin veit aldrei hvort hún á að hlæja að henni eða gráta yfir henni.

Sumt kostar all nokkurn pening á meðan annað er gjaldfrítt fyrir almenning. Mogginn kostar tæpar 47 þúsund krónur á ári, en Fréttablaðið kostar um 54 þúsund fyrir daglega kaupendur, á sama tíma og íbúar Stór Reykjavíkursvæðisins borga ekki krónu fyrir blaðið!

Eitthvað bogið við það? Jafnrétti þegnanna eitthvað misboðið?

RÚV kostar 17 þúsund kall á hvern skattgreiðanda. Séu þrír slíkir á heimilinu kostar Marteinn því 51 þúsund á ári.

Stöð 2 kostar mismunandi eftir því hvað er keypt, en að því er mér skilst minnst um 59 þúsund kall á ári.

Skjár 1 er þarna á milli skilst mér. Nennti ekki að fletta því upp.

Svo borga auglýsendur kostnaðinn við hinar ýmsu stöðvar, en almenningur ekki neitt.

Útvarp Sögu.

Bylgjuna.

Kanann og hvað þetta heitir nú allt.

Miðað við það sem fólkið fær fyrir aurana sína ber Bylgjan höfuð og herðar, einhver sagði höfuð og hreðjar, yfir aðra fjölmiðla. Hún kostar almenning ekkert og er bara spræk. Sérstaklega þátturinn Reykjavík síðdegis. Hann er frábær flesta daga.

Annars skil ég ekkert í þessari fjölmiðlaflóru.

Veit þó að eigendur og stjórnendur hennar eru í flestum tilvikum aðilar sem ættu ekki að koma nærri opinberri umfjöllun um nokkurn skapaðan hlut.

Ættu frekar að halda kjafti og láta lítið fyrir sér fara.

Svona er Ísland í dag!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Sæll. ,,Svo borga auglýsendur kostnaðinn við hinar ýmsu stöðvar, en almenningur ekki neitt.'' Ég efast um að þetta sé rétt hjá þér, Björn. Eins og þú hefur margoft tekið fram borgar almenningur alla skapaða hluti. Líka auglýsingakostnað fjölmiðla. Um Bylgjuna get ég verið bæði sammála þér og ósammála. Síðdegisþátturinn er hvorki fugl né fiskur en þar er engum misboðið eins og á móðurstöðinni. Ég held að allir Íslendingar ættu að halda kjafti og láta lítið fyrir sér fara.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 23.7.2010 kl. 19:26

2 Smámynd: Björn Birgisson

Ben.Ax, þetta er rétt hjá þér. Það er aldrei neitt frítt. Kostnaðurinn lendir bara á öðrum. Mannstu þegar forseti vor var í sjónvarpinu að andskotast við Milton Friedman útaf því að ekki væri frítt inn á fyrirlestur hans á Háskólabíói?

Á síðasta setningin við um okkur tvo líka, eða bara alla hina vitleysingjana?

Björn Birgisson, 23.7.2010 kl. 19:35

3 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Ég var bara að vitna í þig, Björn. ,,Ættu frekar að halda kjafti og láta lítið fyrir sér fara.'' Brian Tracy sagði víst að það væri ekkert til sem héti frír hádegisverður. Svona tala bara þeir sem hafa mikið vit. Við hinir fáum okkur hafragraut. Hann kostar hér um bil ekki neitt.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 23.7.2010 kl. 19:58

4 Smámynd: Björn Birgisson

OK, en ekki ætla ég að halda kjafti. Verði þér hafragrauturinn að góðu!

Björn Birgisson, 23.7.2010 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 602482

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband