Þarf nýtt gos á Heimaey?

"Meðal tillagnanna er að kaupa plóg, sem Lóðsinn í Vestmannaeyjum noti til að draga efni úr innsiglingu  hafnarinnar."

Plóg? Í Landeyjahöfn? Á þetta ekki að vera grín?

Færa svo Markarfljótið um tvo kílómetra til austurs, bara svo sandurinn verði aðeins lengur á leiðinni vestur með ströndinni!

Ekki vissi ég að svona húmorista væri að finna í stjórnkerfinu!

Kannski ljótt að segja þetta, en þarf virkilega nýtt Heimaeyjargos, með tilheyrandi brottflutningi fólks og fénaðar til að stoppa þessa vitleysu?

 


mbl.is Lóðsinn látinn plægja Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll já þarna eru menn að fara framúr sér! En ég segi að hamfaragosið af öræfum og hraunið frá því bjargar höfn að Eyjum.

Sigurður Haraldsson, 15.11.2010 kl. 23:24

2 identicon

Hverjir bera ábyrgð af þessu klúðri.? Það voru margir búnir að vara við þessum framkvæmdum,og man ég sérstaklega eftir því að Grétar Mar var búin að benda á hve arfavitlausar þessar framkvæmdir yrðu.Sem satt og rétt er.

Númi (IP-tala skráð) 15.11.2010 kl. 23:36

3 Smámynd: Björn Birgisson

Sigurður, ertu búinn að láta Siglingamálastofnun vita af því?

Björn Birgisson, 15.11.2010 kl. 23:36

4 Smámynd: Björn Birgisson

Númi, Árni Johnsen hefur trú á þessu. Hann náði kjöri, en ekki Grétar Mar. Hvað segir það okkur?

Björn Birgisson, 15.11.2010 kl. 23:40

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Björn ekki beint en ef þeir hafa lesið eitthvað af bloggi mínu þá hafa þeir séð þetta.

Sigurður Haraldsson, 15.11.2010 kl. 23:44

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þó þeir breyttu farvegi Markarfljóts og létu það renna til sjávar í Skagafirði, breytti það litlu. Varla eru menn svo einfaldir að halda að allur suðurstrandarsandurinn sé úr Markarfljóti kominn?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 15.11.2010 kl. 23:51

7 Smámynd: Björn Birgisson

Hvernig var nú þetta: Sælir eru einfaldir því ........................

Björn Birgisson, 15.11.2010 kl. 23:54

8 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Sumarliði Einar Daðason, 16.11.2010 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 602478

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband